Meðferð persónuupplýsinga
Til þess að geta veitt þér góða og stöðuga þjónustu, þá þurfum við að vinna með ákveðnar persónuupplýsingar. Allar persónuupplýsingar sem við vinnum með koma beint frá þér.
Hversu lengi við höldum utan um upplýsingarnar þínar fer eftir tilgangi upplýsinganna, heimild og lögum um bókhald. Okkur ber lögum samkvæmt að geyma upplýsingar um vörukaup og greiðsluupplýsingar (þ.e. staðfestingu á greiðslu frá færsluhirðum) í minnst 7 ár en ekki lengur en í 10 ár.
Hér koma nokkrar útskýringar á þeim persónuupplýsingum sem við söfnum, af hverju við söfnum og þeim og hvernig við fáum heimildir fyrir söfnuninni. Þú hefur alltaf rétt á því að óska eftir afriti af persónuupplýsingunum þínum, leiðrétta upplýsingarnar sem við geymum eða afturkalla heimild okkar til að vinna með þær og láta okkur eyða þeim. Þessi réttur er samkvæmt lögum um persónuvernd, sbr. 17. og 20. gr. laga nr. 90/2018. Þá átt þú einnig rétt á að flytja eigin gögn eða takmarka okkar notkun á vinnslu persónuupplýsinga um þig, að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum. Þú mátt einnig andmæla vinnslunni skv. 21. gr. laganna.
Tengiliðaupplýsingar
Til að geta verið í samskiptum við þig, ásamt því að uppfylla þjónustu á borð við heimsendingarþjónustu og til að tryggja þín réttindi t.d. vegna vöruskila eða gerð reikninga, þá þurfum við að halda utan um nafn þitt, heimilisfang, netfang og símanúmer.
Þessum upplýsingum deilum við ekki með þriðja aðila, nema þá í þeim tilfellum þar sem við notum þriðja aðila til að uppfylla ákveðna þjónustu. Þetta á m.a. við þegar við nýtum flutningsaðila til að uppfylla heimsendingarþjónustu á vörupöntunum eða viðgerðaraðila til að uppfylla ábyrgðarþjónustu.
Ef þú velur að skrá þig á póstlista okkar þá nýtum við einnig þessar upplýsingar til að senda þér auglýsingar og upplýsingar um tilboð. Þér stendur alltaf til boða að stöðva notkun þessara upplýsinga í tilgangi markaðssetningar.
Greiðsluupplýsingar
Engar kortaupplýsingar eru vistaðar á okkar vefþjónum. Þegar pöntun er gerð þá ferð þú yfir á viðeigandi greiðslusíðu sem sendir okkur svo staðfestingu á að greiðsla hafi borist – en þetta eru þær upplýsingar sem við vinnum með við uppgjör og bókhald.
Við vistum upplýsingar um greiddar pantanir, s.s. hvaða vörur eru verslaðar, hvenær pöntun var gerð og fyrir hvaða upphæð. Þessar upplýsingar, ásamt þínum tengiliðaupplýsingum, eru notaðar til að afgreiða pöntunina og þá þjónustu sem þú hefur valið, hvort sem þú vilt sækja eða fá sent.
Aðrar upplýsingar
Aðrar upplýsingar sem við vinnum með eru alls kyns tölfræðilegar upplýsingar, sem eru ópersónugreinanlegar upplýsingar og því ekki hægt að rekja til stakra viðskiptavina. Þetta eru t.d. upplýsingar um heildarfjölda pantana, heimsóknir á vef, notkun afsláttarkóða o.s.frv.
Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Ungmennafélag Grindavíkur, kt. 420284-0129. Sértu með spurningar eða ábendingar varðandi þessi atriði skaltu senda tölvupóst á umfg@umfg.is.
Viljir þú leggja fram kvörtun vegna vinnslu persónuupplýsinga þá er þér velkomið að hafa samband við Persónuvernd. Skrifstofa hennar er að Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík, netfang: postur@personuvernd.is.